Argentíubúar eru þekktir fyrir gott nautakjöt og Chimmichurry og bera þetta tvennt fram saman.

Steik (Entrecote) á teini:
Steikin skorin í rúmlega munnstóra bita. Blandið 2-3 tsk af Steikarkryddi  frá Kryddhúsinu í 1-2 msk af ólífuolíu og nuddið á kjötið.  
(Við vorum með 500 gr af kjöti) Þræðið upp á grillspjót og geymið í kæli í a.m.k. 2 klst. Saltið og piprið áður en spjótin eru sett á heitt grill.
 
Einstaklega holl og ljúffeng Chimmichurry grillsósa:
1 hluti af Chimmichurry kryddblöndu Kryddhússins á móti 3-4 hlutum af ólífuolíu (þessi græna góða). ½ tsk vinegear og aðeins salt til að skerpa bragðið. Hrærið allt saman og látið standa í a.m.k. 20 mín. áður en borið fram. Þessi grillsósa geymist vel í lokuðu íláti inn í kæli.


Grillsalat:
3 tómatar
1 rauð paprika  
1 ferskt chili
1 laukur
1-2 hvítlauksgeirar
ólífuolía, salt og pipar.
 
Allt heilgrillað með hýðinu á. Grillið vel á öllum hliðum. Þegar þetta er tilbúið takið þá hýðið af grænmetinu, (kjarnhreinsið paprikuna) og skerið allt fínt.  Setjið í skál og dreypið af ólífuolíu saman við, saltið og piprið.



Mega holl salatdressing með sinnepsfræum:
1 msk sinnepsfræ (mulin i mortel eða með kökukefli en það er mjög auvelt að mylja fræin )
1 tsk eplaedik
1/2-1 dl ólífuolía (þessi græna, góða)
1 tsk lífrænt hunang
Smá sítrónusafa og salt (sjávarsalt) ef vill
Öllu hrært vel saman og hellt yfir ferskt grænt salat.

Sinnepsfræ eru súperfæða og ekki að ástæðulausu. Þau eru auðug af næringarefnum eins og selenium, magnesíum, zinki sem og omega 3 fitusýrum og járni, B6 vítamíni ofl. Þau vinna gegn bólgum, gikt og eru bakteríudrepandi svo e-ð sé nefnt. Sinnepsfræ eru ekki ný undir sólinni frekar en annað krydd og þau koma fyrir í 2500 ára indverskum frásögnum um Gautama Buddah og á þau er minnst á í Biblíunni sem sýnir hve mögnuð þessi fræ eru!

add_action( 'woocommerce_after_shop_loop_item', 'woocommerce_template_loop_add_to_cart', 20 );