Kryddaðar smákökur (vegan) by admin | okt 26, 2021 | Bakstur Kryddaðar smákökur sem eru ljúffengar á bragðið:200gr hveiti2 tsk engifer1 1/2 tsk kanill1/2 tsk allrahanda1/4 tsk múskat hneta (rifið fínt)1 msk kakó115gr smjörlíki100gr hrásykur100gr kókossykur85gr melassa (molasses)1 tsk matarsódi (leystur upp í 1 1/2 tsk af sjóðandi vatni)Hveiti, krydd og kakó sigtað saman í skál. Smjölíkið og sykurinn þeytt saman þar til létt og ljóst. Bætið þá melassa út í og blandið vel saman. Bætið helming af þurrefnunum út í ásamt matarsódanum og að lokum restinni af þurrefnunum. Deigið geymt í kæli í a.m.k. 1 klst. Hitið ofninn í 170C. Mótið litlar kúlur úr deiginu og veltið þeim upp úr hrásykri. Setjið á smjörpappír í ofnskúffu og bakið í u.þ.b. 15 mín.